Hagsmunaaðilar í garðyrkju hafa ákveðið að birta sérálit sem skilað var til Mennta- og menningarmálaráðherra vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem uppi er, og hefur verið, varðandi starfsmenntanám í garðyrkju. Greinargerðinni er ætlað að varpa ljósi á þann vanda sem uppi er þar sem hagsmunir atvinnugreinarinnar og starfsmenntanámsins eru fyrir borð bornir.


Það er mikið fagnaðarefni að mennta- og menningarmálaráðherra skuli hafa ákveðið að færa starfsmenntanám í garðyrkjugreinum, sem er á framhaldsskólastigi, frá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ).
Það er hins vegar sérstakt áhyggjuefni að LbhÍ skuli ætla að leggja undir sig þá einu aðstöðu í landinu sem ætluð er og hefur verið fyrir starfsmenntanám í garðyrkju og nýta til óskyldra verkefna.


Í rúmlega 80 ár hafa Reykir í Ölfusi verið hjarta garðyrkjunnar, en með tilburðum stjórnenda LbhÍ er nú verið að flæma garðyrjunámið burt á kostnað verkefna háskólans, lítt tengdum garðyrkju, en skólinn hefur þegar starfsaðstöðu á Keldnaholti og Hvanneyri.


Ef svo heldur sem horfir mun starfsmenntanám í garðyrkju að Reykjum í Ölfusi heyra sögunni til. Hagsmunaaðilar munu áfram leita leiða til að standa vörð um starfsmenntanám í garðyrkju og mikilvægt og vandað rannsókna- og þróunarsamstarf því samhliða.
Nauðsynlegt er að starfsmenntanáminu verði tryggð sú aðstaða sem til þess þarf, án frekari afskipta stjórnenda LbhÍ.


F.h. hagsmunaaðila.


Berglind Ásgeirsdóttir, formaður Sambands garðyrkju- og umhverfisstjóra sveitarfélaga (SAMGUS) sími: 822 7639

Gunnar Þorgeirsson, formaður Sambands garðyrkjubænda sími: 892 7309

Heiðar Smári Harðarson, formaður Félags skrúðgarðyrkjumeistara, sími: 697 5599

Heimir Janusarson, Félagi iðn- og tæknigreina

Vernharður Gunnarsson, formaður Félags garðplöntuframleiðenda

Björn Bjarndal, formaður Félags skógareigenda á Suðurlandi