Aðildarumsókn

Samtök Garðyrkju- og Umhverfisstjóra Sveitarfélaga

Umsókn um aðild að SAMGUS

Samkv. 2. gr. laga SAMGUS. Aðild að samtökum.

Félagsmenn geta þeir orðið sem eru yfirmenn garðyrkju- og umhverfisdeilda sveitarfélaga, sameiginlegra rekinna stofnana sveitarfélaga, hlutafélaga sem starfa á sama sviði og eru í eigu sveitarfélaga eða sambærilegra stofnana á vegum ríkisins.
Félagar sem láta af störfum fyrir aldurs sakir geta haldið aukaaðild að félaginu.
Sækja þarf um aðild að samtökunum til stjórnar. 


Sótt er um með því að senda tölvupóst á stjornsamgus@gmail.com
Gott að það komi fram fullt nafn, starfsheiti, sveitarfélag, netfang, símanúmer og kennitala greiðanda.