Mikil stemning og kraftur ríkti á Leikvallaráðstefnunni Að leika er að læra sem haldin var í Hlégarði í Mosfellsbæ þann 28. apríl síðastliðinn. Ráðstefnan vakti verðskuldaða athygli meðal þeirra sem starfa að skipulagi, hönnun og rekstri leiksvæða enda ljóst að leikvellir nútímans eru orðnir miklu meira en bara rólur og rennibrautir. Þeir eru mikilvægt umhverfi fyrir þroska, sköpun og samfélag barna.
Sérfræðingar alls staðar af landinu komu saman og deildu reynslu, þekkingu og nýjum hugmyndum um hvernig hægt sé að skapa örugg, skapandi og lifandi leiksvæði fyrir komandi kynslóðir. Dagskráin var fjölbreytt og áhugaverð þar sem farið var yfir allt frá slysavörnum og falldempandi undirlagi til reglugerða, gagnvirkra korta og nýjustu strauma í leiksvæðahönnun.
Gestir sýndu fyrirlestrum mikinn áhuga og sköpuðust líflegar umræður um mikilvægi þess að hanna leiksvæði sem höfða bæði til öryggis og ímyndunarafls barna. Sérstaka athygli vakti erindi Hrafns Ingimundarsonar frá Krumma ehf. sem fór yfir 40 ára reynslu í bransanum ásamt erindum frá landslagsarkitektum, sérfræðingum í slysavörnum og fulltrúum heilbrigðiseftirlits.
Einnig kynntu umboðsaðilar leiktækja spennandi nýjungar og tæknilausnir sem vöktu mikla athygli meðal þátttakenda. Þar mátti sjá hvernig ný hugsun í leiksvæðum getur aukið bæði hreyfingu, félagsfærni og gleði barna í daglegu umhverfi þeirra.
Ráðstefnan staðfesti að áhugi á vönduðum leiksvæðum er sífellt að aukast og að samvinna fagfólks skiptir sköpum þegar kemur að því að skapa öruggt og skemmtilegt leikrými fyrir börn. Dagurinn einkenndist af jákvæðni, innblæstri og sterkri framtíðarsýn og þátttakendur fóru heim með nýjar hugmyndir, aukna þekkingu og enn meiri metnað fyrir mikilvægu verkefni.
Það er óhætt að segja að Leikvallaráðstefnan hafi tekist einstaklega vel og orðið mikilvægur vettvangur fyrir alla sem vilja gera leik barna enn betri.