Aðalfundur SAMGUS – Mosfellsbær 2026

Stjórn SAMGUS frá apríl 2025

Berglind Ásgeirsdóttir, formaður
Guðlaug F. Þorsteinsdóttir, gjaldkeri
Heiða Ágústsdóttir, ritari
Viðar Jakob Gunnarsson, meðstjórnandi
Smári Jónas Lúðvíksson, meðstjórnandi

Stjórnin 

Stjórn SAMGUS frá síðasta aðalfundi er þannig skipuð: Berglind Ásgeirsdóttir formaður, Guðlaug F. Þorsteinsdóttir, gjaldkeri, Heiða Ágústsdóttir ritari,  Viðar Jakob Gunnarsson og Smári Jónas Lúðvíksson, meðstjórnendur.  

Haldnir voru níu stjórnarfundir á tímabilinu 2025-2026. Auk þess sem mikil samskipti voru í síma,tölvupóstum og messenger. Samstarfið hefur að venju gengið mjög vel. 

Samskipti og ýmis verkefni: 

Garðyrkjuskólinn og FSU 

Fulltrúar samgus hafa mætt á fund fagnefnda skólans en fyrirliggjandi er endurskoðun á námsskrám garðyrkjubrauta og ræddu brautarstjórar við sínar fagnefndir.
Skólameistari Fsu er í samskiptum um Menntamálaráðuneytið um stöðu námsins og bíðum við frétta af því. 

SATS  

Haustfundur SATS 2025 var haldinn 6.nóvember á Hótel Nordica í Reykjavík og fór vorfundur fram á Hótel Geysi dagana 8. Og 9. maí 

Stjórnirnar hafa ekki fundað saman enn sem komið er og enginn fulltrúi Samgus skipaður formlegur tengiliður. Formenn SATS og Samgus ræddu sín á milli að gott væri að efla tengslin og tryggja að formenn beggja félaga mæti á aðalfundi hvors félags. 

Félagsmenn Samgus eru velkomin á SATS fundi. 
 

Norræn samskipti 

Síðustu ár hafa Þórólfur Jónsson og Berglind Ásgeirsdóttir fór á fund í Kaupmannahöfn og hittu þar tengiliði við önnur félög á norðurlöndum. Ákveðið er að halda samnorræna ráðstefnu í Danmörku haustið 2027 og stefnum við á að fjölmenna þangað. Mikilvægt er  að halda góðum tengslum og mæta á ráðstefnur erlendis , bæða til að sjá nýja hluti, læra um hvaða straumar og stefnur eru ríkjandi og sækja okkur endurmenntun.  

Heimasíða SAMGUS  

Heimasíðan www.samgus.is er opin. Félagsmenn mega vera duglegir að senda inn efni sem má birta á síðunni eða benda stjórn á hvað þeim finnst að ætti að skoða og birta. Heiða Ágústsdóttir ritari hefur séð um að uppfæra nýtt efni á síðunni og má senda til hennar á heida@mos.is fréttir og tilkynningar til birtingar á síðunni.  

Facebook síður 

Stjórn minnir á opna síðu Samtaka garðyrkju- og umhverfisstjóra sveitarfélaga og lokaða síðu Félagsmanna SAMGUS. Eru allir félagar hvattir til þess að gerast meðlimir í lokaða hópnum og líka við opnu síðuna. Þar er góð leið að deila myndum, spurningum og öðru efni. 

Gögn SAMGUS

Gögnin verða vistuð á Google drive til að með einföldum hætti verði hægt að veita nýjum stjórnarmeðlimum aðgang að öllum skjölum félagsins. Annars eru skýrslur og fundargerðir aðgengilegar á samgus.is

Fastir fundir SAMGUS 

Samgus hefur frá stofnun samtakanna árið 1992 haldið tvo fasta fundi á ári, annan að vori og hinn að hausti. Aðalfundur Samgus 2025 var síðast haldin á Akureyri og Haustfundur fór fram í Reykjanesbæ

Stjórnin þakkar gestgjöfum og skipuleggjendum undirbúning, góðar móttökur og skemmtilega dagskrá. 

Aðalfundur Maí 2025 – Akureyri

Stiklað á stóru 

Miðvikudagur: 14.maí

Dagurinn hófst á gönguferð um miðbæinn undir leiðsögn Jóns Birgis þar sem farið var yfir komandi framkvæmdir. Eftir hádegi fékk hópurinn kynningu á gróðurskipulagi og umhverfisstefnu bæjarins í ráðhúsinu.

Eftir það var haldið í Ræktunarstöð Akureyrar þar sem starfsemin og matjurtagarðarnir voru kynntir. Dagskránni hélt áfram með göngu meðfram strandlengjunni, pylsuáti í Leirunesti og heimsókn í Umhverfismiðstöðina. Dagurinn endaði á sameiginlegum kvöldverði og slökun í Skógarböðunum.

Fimmtudagur 15. maí:

Dagurinn hófst í rjómablíðu í Lystigarðinum þar sem farið var yfir sögu garðsins og skoðaðar sérstakar álfaslóðir. Því næst lá leiðin í Sólskóga til að kynna sér ræktun á trjám og blómum í stórum stíl.

Eftir heimsókn á Birkibarinn lauk ferðinni í Kjarnaskógi með fræðslugöngu um skógrækt og útiveru í sólinni. Hópurinn borðaði svo saman hátíðlegan kvöldverð á Múlabergi að lokum.

Ferðin var viðburðarík þar sem áhersla var lögð á umhverfismál, skipulag grænna svæða og ræktun í bland við góða útivist og samveru.

Haustfundur September 2025 – Reykjanesbær

Stiklað á stóru 

Haustfundur Samgus fór fram dagana 25. og 26. september.

Fimmtudagurinn 25. september hófst á því að fundargestir gæddu sér á morgunkaffi í ráðhúsi Reykjanesbæjar, þótt einhverjir hafi villst í gamla ráðhúsið af gömlum vana. Fyrri hluti dagsins fór í vinnustofu undir stjórn Berglindar Ásgeirsdóttur, þar sem hópnum var skipt niður til að ræða um stöðu skógræktarfélaga og verkefnið Viljandi vilt sem snýr að líffræðilegum fjölbreytileika. Helst ber að nefna ákvörðun um að endurvekja Leikvallaráðstefnuna, sem stefnt er á að halda í Mosfellsbæ næsta vor. 

Eftir hádegisverð var haldið í heimsóknir til Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar (Kadeco) og Íslandshúss. Þar fengu fundargestir innsýn í stór tækifæri og þróunaráætlanir á svæðinu, auk þess sem rætt var um áhugaverða vöruþróun í samvinnu við sveitarfélög. Dagskrá dagsins lauk svo með sameiginlegum kvöldverð og trúnó í ráðhúsinu, en hluti hópsins hélt leiknum áfram í pílukeppni fram eftir kvöldi.

Föstudaginn 26. september hélt fundurinn áfram með fræðsluerindum um starfsemi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og Reykjanes Geopark. Þar var farið yfir þær miklu áskoranir sem íbúar svæðisins hafa þurft að glíma við á síðustu árum, sem vakti líflegar umræður í salnum.

Vegna veðurs var vettvangsferð dagsins að mestu leyti keyrð, en hópurinn fór þó út og skoðaði nýjan og glæsilegan leikskóla, Drekadal. Keyrt var framhjá helstu kennileitum bæjarins áður en ferðinni lauk í Grindavík. Þar fékk hópurinn að sjá með eigin augum hvernig starfsmenn hafa unnið ötullega að viðgerðum og viðhaldi við erfiðar aðstæður. Fundinum lauk svo formlega um hádegisbil og nýttu nokkrir tækifærið til að prófa nýju mathöllina, Völl, áður en haldið var heim á leið.

Samgus þakkar Akureyri og Reykjanesbæ fyrir góðar móttökur og góða samveru.  

Félagaskrá 

Eftir aðalfund 2025 voru félagar Samgus 73 talsins.  

Stjórnin þakkar þeim sem hafa hætt á árinu fyrir samstarfið og óskum þeim velfarnaðar á nýjum vettvangi. Jafnframt bjóðum við nýja félaga velkomna í samgus.  

Fyrir hönd stjórnar 

Nýjir félagar sem eru teknir inn í félagið á þessum aðalfundi: 

Marta Daníelsdóttir, Garðyrkjustjóri – Reykjavíkurborg

Heiða Hrund Jack, Verkefnastjóri umhverfismála – Húnaþing Vestra

Ásdís Björk Friðgeirsdóttir, Verkefnastjóri garðyrkjumanna – Reykjavíkurborg

Árni Rúnarsson, Verkefnastjóri garðyrkjumanna – Reykjavíkurborg

Nanna Vilborg Harðardóttir, Verkefnastjóri skipulags- og umhverfismála – Grundarfjörður
Helga Rán Sigurðardóttir – verkstjóri garðyrkjudeildar Hafnarfjarðar

Berglind Ásgeirsdóttir, Formaður.