Dagana 29. og 30. Apríl var aðalfundur Samgus haldin í Mosfellsbæ. Ferðin var blanda af fræðslu, vettvangsferðum og skemmtilegri samveru.
Dagskráin hófst í Hlégarði miðvikudaginn 29.apríl þar sem Formaður bæjarráðs bauð hópinn velkominn. Morguninn var þéttskipaður skemmtilegum erindum. Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi sagði frá uppbyggingu á Blikastöðum. Eiður Guðmundsson frá Sorpu fjallaði um moltu og mikilvægi lífrænnar endurvinnslu og Ólafía Dögg Ásgeirsdóttir skrifstofustjóri kynnti sögu og framtíð Álafosskvosarinnar. Eftir góðar kynningar ræddu félagar um leikvallaráðstefnu sem Samgus stóð fyrir deginum áður og málefni leiksvæða sveitarfélaga.
Eftir góðan hádegisverð frá Grillvagninum kom Bjarki Bjarnason sagnfræðingur og fór með hópinn í skoðunarferð um bæinn. Á leiðinni var stoppað á áhugaverðum stöðum og var tekið á móti hópnum með mikilli gestristni. Björn Sigurbjörnsson sagði frá sögu Grásteina, plöntuframleiðslu og skipulagi svæðisins, sem er mikil náttúrperla og fallegur trjágróður. Guðný Dóra Gestsdóttir tók á móti hópnum á Gljúfrasteini og var húsið og garður skoðað. Gísli Jóhannsson tók á móti í Dalsgarði og fræddi félaga um starfsemi og ræktun Dalsgarðs sem ræktar sumarblóm og fleira fyrir Mosfellsbæ.
Ekið var upp að Reykjum og svo komið við í Þjónustustöð Mosfellsbæjar þar sem var boðið uppá veitingar og gott spjall. Dagskrá miðvikudagsins lauk svo þar sem gengið var niður að Hlégarði þar sem margt áhugavert var skoðað. Kvöldverður var svo haldin í Hlégarði með góðu spjalli og trúnó fram á kvöld.
Fimmtudagurinn hófst á aðalfundi Samgus.
Setning aðalfundar. Berglind Ásgeirsdóttir formaður býður gesti velkomna á fundinn.
Fundi skal stjórnað samkvæmt venjulegum fundarsköpum.
Kosning fundarstjóra.
Berglind Ásgeirsdóttir tilnefnir Smára Jónas Lúðvíksson sem fundarstjóra sem er samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
Skýrsla stjórnar lögð fram og lesin upp af formanni.
Skýrslan samþykkt með öllum greiddum atkvæðum
Reikningar félagsins.
Reikningar eru lagðir fram til kynningar. Samþykkt var að reikningurinn verði lagður fram til samþykkta á haustfundi félagsins 2026.
Fundarstjóri leggur til breytingar á dagskrá.
Samþykkt að breyta dagskrá með öllum greiddum atkvæðum.
Breyting á dagskrá – samþykkt á nýjum lögum félagsins.
Ný lög lögð fram til samþykktar. Samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
Kosning formanns og stjórnar, auk tveggja endurskoðenda.
- Berglind Ásgeirsdóttir kosin sem formaður til eins árs
- Guðlaug F. Þorsteinsdóttir kosin sem gjaldkeri til tveggja ára
- Heiða Ágústsdóttir ritari gengur úr stjórn
- Karen Jónasdóttir Kópavogi og Sóley Baldursdóttir Borgarbyggð kosnar nýjar í stjórn til tveggja ára
- Smári Jónas Lúðvíksson kosin áfram til eins árs
Ákvörðun um árgjald fyrir næsta starfsár.
Guðlaug leggur fram tillögu um að árgjald haldist óbreytt, 20.000kr. Samþykkt með öllum greiddum atkvæðum
Ákvörðun um fjárhags- og starfsáætlun fyrir næsta starfsár.
Fjárhags og starfsáætlun lögð fyrir og samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
Haustfundur – Verður á Snæfellsnesi í september
Aðalfundur að vori – unnið er að staðsetningu
Erindi sem borist hafa.
Engin erindi bárust
Önnur mál.
Umræða um Heiðursfélaga og leiðbeinandi reglur.
Formaður fer yfir tillögu stjórnar um ákvörðun heiðursfélaga. Lagt fram og kynnt.
Líflegar umræður um málið
Fleira ekki gert – Aðalfundi slitið kl 11.03
Ævar Aðalsteinsson Mosverji kom að fundi loknum og kynnti skemmtilegt samstarfsverkefni Mosverja og Mosfellsbæjar á stikuðum gönguleiðum.
Þegar Ævar lauk sinni kynningu tók við kynning frá garðyrkjudeild Mosfellsbæjar þar sem Monika fór yfir spennandi tilraunir sem gerðar hafa verið í bænum.
Miklar og áhugaverðar umræður fóru í gang eftir báðar kynningar.
Fundi Samgus í Mosfellsbæ var formlega slitið þegar þessum erindum var lokið
Þakkar Samgus Mosfellingum fyrir skemmtilega daga í Mosfellsbæ.
