SAMGUS fagnar 30 ára afmæli á árinu. Samtökin voru stofnuð þann 30. janúar 1992 á Hótel Norðurlandi á Akureyri. Í tilefni þess verður haldin ráðstefna með yfirskriftinni Grænu Svæðin og loftslagsmálin – Frá hönnun til umhirðu.
Dagskráin er glæsileg og má sjá hana hér fyrir neðan.
Ýttu hér fyrir skráningu
Grænu svæðin og loftslagsmálin
– frá hönnun til umhirðu
30 ára afmælisráðstefna Samgus
Samtaka garðyrkju og umhverfisstjóra sveitarfélaga
Öll áhugasöm velkomin
Hvenær: 6. apríl 2022
Hvar: Hásölum—Safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju
Verð: 9.900
Fundarstjóri: Olga Björt Þórðardóttir
Innifalið í verði er hádegisverður og kaffiveitingar
Dagskrá:
9:00 Húsið opnar
9:15—9:30 Einar E. Sæmundsen fyrsti formaður SAMGUS setur ráðstefnuna
9:30—10:00 Gunnar Óli Guðjónsson—Stokkar og Steinar
10:00—10:40 Jón Kalmansson—Hvaða þýðingu hafa töfrar náttúrunnar?
10:50—11:20 Ása L. Aradóttir—Náttúra í hinu byggða umhverfi
11:30—12:15 Guðríður Helgadóttir—Blóma engi, villtur gróður og sláttur
12:15—12:45 Hádegisverður
12:45—13:20 Edwin Roald—Carbon Par : Kolefnisbinding á slegnu grasi
13:30—14:10 Sigríður Kristjánsdóttir—Skipulag svæða
14:20—15:00 Steinar Björgvinsson—Götutré—hvað virkar?