Vorfundur Samgus 2025 var haldinn á Akureyri dagana 14-16 maí.
Miðvikudagurinn 14. Maí
Hluti hópsins mætti kl 12 við ráðhús Akureyrar í rjómablíðu og tók Jón Birgir á móti fólkinu. Byrjað var á því að fara í göngutúr um miðbæ Akureyrar þar sem Jón Birgir sagði frá komandi framkvæmdum og öðru skemmtilegu.
Kl 13 var haldið aftur í ráðhúsið þar sem restin af fólkinu var komið og fengum við þá kynningu frá umhverfis- og mannvirkjasviði. Var t.d. Kynning á gróður skipulagi í hverfum bæjarins ásamt kynningu á umhverfis- og loftslagsstefnu Akureyrarbæjar 2022-2030.
Að því loknu var farið með hópinn í strætó að ræktunarstöð Akureyrar gengið var um skóginn áður en komið var að ræktunarstöð Akureyrar þar sem Heiðrún Sigurðardóttir fór yfir allt það áhugaverða sem hún er að gera í ræktunarstöðinni ásamt því að sjá um matjurtagarðana og forrækta grænmeti fyrir þá sem nota garðana.
Hópurinn gekk svo af stað eftir strandlengjunni að Leirunesti þar sem liðið pulsaði sig upp.
Strætó sótti svo hópinn og keyrði í Umhverfismiðstöð Akureyrar en þar fengum við góða kynningu frá Guðríði Friðriksdóttur Sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs um starfsemi sviðsins. Hópurinn þáði þar góðar veitingar.
Kl 19:00 var svo sameiginlegur kvöldverður og fóru svo nokkrir áhugasamir í Skógarböðin eftir mat.
Fimmtudagur 15. maí
Enn var rjómablíða í boði Akureyrar þegar fundargestir mættu í Lystigarðinn. Guðrún Kristín Björgvinsdóttir umsjónarmaður garðsins tók á móti hópnum. Farið var í göngu um garðin þar sem Guðrún fór yfir sögu, umhirðu og áætlun garðsins.
Bryndís Fjóla Pétursdóttir kynnti fyrir okkur sitt verkefni um álfaslóðir og fór hún um garðinn með hópinn og kynnti slóðir álfa og huldufólks.
Þegar því var lokið var farið í Sólskóga þar sem Katrín Ásgrímsdóttir einn eigandi ræktunarstöðvarinnar fór yfir starfsemina. Voru gróðurhúsin skoðuð þar sem tré, runnar, fjölæringar, sumarblóm og skógarplöntur eru ræktaðar í stórum stíl.
Félögum var svo boðið á Birkibarinn þar sem léttar veitingar og skógarpopp var í boði.
Ingólfur Jóhannsson framkvæmdastjóri skógræktarfélags Eyfirðinga bauð uppá skógargöngu um Kjarnaskóg með góðri fræðslu sem endaði á veitingum og félagar gátu slakað á í sólinni eftir góðan dag.
Sameiginlegur kvöldverður var svo á Múlabergi á hótel KEA.
Aðalfundur Samgus 16. maí
Fundargerð
Kosning fundarstjóra. – formaður SAMGUS Ingibjörg Sigurðardóttir gerir tillögu að fundarstjóra Jón Birgir.
Jón Birgir tekur við fundarstjórn. Samþykkt
1. Skýrsla stjórnar. – Ingibjörg les upp skýrslu stjórnar. Samþykkt
2. Reikningar félagsins. – Samþykktur með öllum greiddum atkvæðum
3. Kosning formanns og stjórnar, auk tveggja endurskoðenda.
Ingibjörg ásamt Svavari Sverrissyni fara úr stjórn.
Berglind Ásgeirsdóttir kosin sem formaður
Heiða Ágústsdóttir verður áfram ritari
Guðlaug Þorsteinsdóttir kemur ný í stjórn og tekur að sér hlutverk gjaldkera.
Nýr meðstjórnandi er Smári J. Lúðvíksson.
5. Ákvörðun um árgjald fyrir næsta starfsár.
Berglind leggur fram tillögu um að árgjald haldist óbreytt. Jón Birgir leggur fram að árgjaldið hækki í 20 þús. Umræður fara fram.
20 þús samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
6. Ákvörðun um fjárhags- og starfsáætlun fyrir næsta starfsár.
Berglind fer yfir fjárhagsáætlun næsta starfsárs. – Tillaga úr sal að stofna vaxtarreikning – lagt í hendur stjórnar að setja í farveg. Fjárhagsáætlun samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
Starfsáætlun: Ingibjörg.
Haustfundur – unnið að því að semja við sveitarfélag um staðsetningu – verður auglýst eins og fljótt og hægt er.
Aðalfundur að vori 2026 – haldin í Mosfellsbæ.
7. Erindi sem borist hafa.
Ályktun vegna stöðu garðyrkjuskólans. Berglind fer yfir stöðu skólans. Samþykkt að senda ályktun til ráðuneytis.
Friðrik Baldursson kynnir verkefnið viljandi vilt í samráði við Jón Kristófer.
Friðrik ásamt Jóni Kristófer Arnarssyni, Jón Birgir Gunnlaugssyni, Þorsteini Magna Björnssyni, Hlíf Böðvarsdóttur og Árnýju Guðfinnsdóttur mynda hóp um verkefnið viljandi vilt. Verkefnið verði kynnt sveitarfélögum í áföngum og eftir því sem tilefni er til.
Góðar umræður fóru fram um verkefnið.
Stjórn þakkar Friðriki fyrir framtakið og góða kynningu.
7. Önnur mál.
Umræða um Heiðursfélaga og leiðbeinandi reglur.
Stjórn falið að fara yfir reglur félagsins og leiðbeiningar hvað heiðursfélaga varðar og verða nýjar reglur lagðar fyrir aðalfund 2026.
Stjórn falið að yfirfara lög félagsins fyrir næsta aðalfund.
Kærar þakkir til Akureyrarbæjar fyrir gestrisni og góða dagskrá.
Fleira ekki gert
Fundi slitið 10.38