Aðalfundur SAMGUS – Akureyri 2025 

Stjórn SAMGUS frá apríl 2024:  

Ingibjörg Sigurðardóttir, formaður  
Berglind Ásgeirsdóttir, gjaldkeri  
Heiða Ágústsdóttir, ritari  
Svavar Sverrisson, meðstjórnandi  
Viðar Jakob Gunnarsson, meðstjórnandi 

Stjórnin  

Stjórn SAMGUS frá síðasta aðalfundi er þannig skipuð: Ingibjörg Sigurðardóttir formaður, Berglind Ásgeirsdóttir gjaldkeri, Heiða Ágústsdóttir ritari,  Svavar Sverrisson og Viðar Jakob Gunnarsson meðstjórnendur.   

Endurskoðendur ársreikninga voru á síðasta aðalfundi kjörnir þeir H. Birgir Haraldsson og Kári Aðalsteinsson.  

Haldnir voru fimmtán stjórnarfundir á tímabilinu 2024-2025. Auk þess sem mikil samskipti voru í síma,tölvupóstum og messenger. Samstarfið hefur að venju gengið mjög vel.  

Samskipti og ýmis verkefni:  

Garðyrkjuskólinn og FSU  

Ennþá er óstöðugleiki um staðsetningu námsins og hefur skólameistari Fsu tjáð sig um það í fjölmiðlum ásamt því að skora á ráðuneytið til þess að taka málið til skoðunar og hvetur hún til þess að skólinn verði sjálfstæður skóli, enda sérstaða hans mikil sem og mikilvægi hans á landsvísu.  
Auðvelt ætti að vera í því landslagi sem fyrir okkur liggur að þróa og bæta nám við skólann en erfitt hefur verið síðustu ár að byggja upp þegar undirstaðan er ekki tryggð.  
Til dæmis þarf að taka heildstætt utanum endurmenntun garðyrkjufólks, hvort sem er á almennum markaði eða hinum opinbera.  Heilmörg tækifæri liggja í námskeiðum fyrir almenning og sértæka hópa.  
– Ályktun aðalfundar lögð fram síðar-  

SATS   

Haustfundur SATS 2024 var haldinn föstudaginn 1.nóvember á Parliament hóteli í Reykjavík og fór vorfundur fram á Hótel Geysi dagana 8. Og 9. maí 

Stjórn SATS óskaði eftir erindi frá Samgus á vorfundinn en ekki gafst tækifæri til að verða við þeirri ósk.   

Stjórnirnar hafa ekki fundað saman enn sem komið er og enginn fulltrúi Samgus skipaður formlegur tengiliður, en óskað var eftir því að stjórn SATS hefði samband við formann SAMGUS vegna funda.  

Félagsmenn Samgus eru velkomin á SATS fundi.   
  

Norræn samskipti  

Síðustu ár hafa Þórólfur Jónsson og Berglind Ásgeirsdóttir mætt á teams fundi með tengiliðum hinna norðurlandanna.  Einnig var fundað í Kaupmannahöfn í apríl 2025 og meðal annar fjallað um tilgang og framtíð þessa samstarfs, sem og grunnur lagður að því að halda samnorræna ráðstefnu í Kaupmannahöfn árið 2026 sem við vonumst til að fjölmenna á frá Íslandi.   
Mikilvægt að halda góðum tengslum og mæta á ráðstefnur erlendis , bæða til að sjá nýja hluti, læra um hvaða straumar og stefnur eru ríkjandi og sækja okkur endurmenntun.  
Mögulega hægt að sækja fleiri ráðstefnur í framtíðinni ef við höfum áhuga á því.   

Heimasíða SAMGUS   

Heimasíðan www.samgus.is er opin. Félagsmenn mega vera duglegir að senda inn efni sem má birta á síðunni eða benda stjórn á hvað þeim finnst að ætti að skoða og birta. Heiða Ágústsdóttir ritari hefur séð um að uppfæra nýtt efni á síðunni og má senda til hennar á heida@mos.is fréttir og tilkynningar til birtingar á síðunni.   

Facebook síður  

Stjórn minnir á opna síðu Samtaka garðyrkju- og umhverfisstjóra sveitarfélaga og lokaða síðu Félagsmanna SAMGUS. Eru allir félagar hvattir til þess að gerast meðlimir í lokaða hópnum og líka við opnu síðuna. Þar er góð leið að deila myndum, spurningum og öðru efni.  

Fastir fundir SAMGUS  

Samgus hefur frá stofnun samtakanna árið 1992 haldið tvo fasta fundi á ári, annan að vori og hinn að hausti. Aðalfundur Samgus 2024 var síðast haldin í Reykjavík og Haustfundur fór fram í Kópavogi 

Stjórnin þakkar gestgjöfum og skipuleggjendum undirbúning, góðar móttökur og skemmtilega dagskrá.  

Aðalfundur Apríl 2024 – Reykjavíkurborg 

Stiklað á stóru  

Vorfundur Samgus var haldin dagana 18. – 19. Apríl 2024 í Reykjavík. 

Fimmtudaginn 18.apríl var mæting í Borgartúnið kl 9:45 og boðið uppá morgunkaffi.  

Frá kl 10 – 12.30 kynnti skrifstofa samgangna og borgarhönnuða sín verkefni. Nýtt skipulag í garðyrkjudeild kynnt. Garðyrkjudeildin kynnti einnig tilraun sína með lauka í grasi, gróðurhús á Ingólfstorgi, flugeldagarð og fleira skemmtilegt.  

Kl 12.30 fór hópurinn saman í mathöllina að Hlemmi og gæddi sér á hádegisverði.  

Eftir mat var farið í göngu um borgina þar sem Þórólfur og Zuzanna leiddu hópinn um Borgartúnið, niður Laugarveginn, í Kvosina, Einarsgarður skoðaður, Mæðragarðurinn og útitaflið. Eins var farið í Hallargarðinn þar sem hópurinn fékk að sjá tilraunina um lauka í grasi ásamt því að skoða flugeldagarðinn sem samanstendur af ýmsum tegundum lauka sem líkjast flugeldum. Eins var gengið í gegnum Hljómskálagarðinn sem er alltaf fallegur og Arnarholtið, Hverfisgatan skoðun og svo aftur í Borgartúnið.  

Eftir þessa fróðlegu göngu hélt fólk í Grasagarðinn þar sem hann var skoðaður og kynntur. Dagurinn endaði í sameiginlegum kvöldverði í Café Flóru.  

Föstudagurinn 19.apríl  var mæting kl 9:00 í Ræktunarstöð Reykjavíkurborgar og fengum við góða kynningu á Ræktunarstöðinni. Aðalfundur fór svo fram þar sem kosning stjórnar fór fram og hefðbundin aðalfundarstörf. 
Eftir aðalfund var kynning á samstarfi Lands og Skógur og Reykjanesbæjar vegna Landshlutaáætlanir.  

Haustfundur September 2024 – Kópavogur  

Stiklað á stóru  

Samgusarar mættu í Kópavog klukkan 12.30 á neðri hæð bókasafns Kópavogs í kaffi og kruðerí. Klukkan 13.00 hófst dagskráin með ýmsri fræðslu frá Friðrik Baldurssyni garðyrkjustjóra. Bókasafnið skoðað með leiðsögn og að því loknu var gengið út í Gerðarsafn sem er á sömu þúfu. Þar tók safnstjórinn á móti hópnum og sagði okkur frá sögu safnsins og safnkosti ásamt því að ganga með okkur um safnið og skoða safnkostinn.  

Gengið var upp að Kópavogskirkju og umhverfið þar skoðað áður haldið var í rútuferð með sviðsstjóra usk kópavogs. Keyrt var að Kársnesskóla sem er nýlega endurbyggður og fjallað um ýmislegt sem betur hefði mátt fara í því ferli. Farið var með rútu í gegnum bæinn og endað niður við Kópavogsgerði þar sem félagsmenn fóru úr rútunni og gengu um nærliggjandi svæði. Hópurinn gekk síðan áleiðis frá vesturhluta Kópavogs yfir í austurhlutann en til þess þarf að ganga undir Hafnarfjarðarveginn. Þar var nánasta umhverfi skoðað og fengum við fræðslu frá garðyrkjustjóra um umhverfið og lækinn.  

Næst á dagskrá var stefnt á leiksvæði í Ársölum sem búið er að endurnýja. Þaðan var gengið yfir að leikskólanum Fífusölum sem einnig er með endurgerða lóð. Svæðin þar í kring voru skoðuð og gengið var yfir á bílaplanið hjá heilsugæslunni við hliðina þar sem rútan var mætt til að sækja hópinn.  

Þaðan var var keyrt í þjónustumiðstöðina þar sem boðið var upp á léttar veitingar í föstu og fljótandi formi. Eftir hressingu og spjall í þjónustumiðstöðinni var farið aftur í rútuna. Keyrt var í Guðmundarlund og ýmsir trjálundir og gróður skoðaður þar. Kristinn H Þorsteinsson tók á móti hópnum en hann er framkvæmdastjóri skógræktarfélags Kópavogs. Hann fræddi hópinn um sögu og tilurð skógræktarfélagsins og uppbygginguna í Guðmunarlundi sem er orðinn að þvílíkri paradís fyrir íbúa Kópavogs og nágrennis. Endað var í skála félagsins þar sem dýrindis veitingar voru framreiddar og mikið talað fram á kvöld. 

Daginn eftir skiptist hópurinn í tvennt. Helmingurinn fór í trjásafnið í Meltungu og hinn helmingurinn í þjónustumiðstöðina þar sem rætt var um leiksvæði og fl. Þeir sem fóru í trjásafnið söfnuðust á bílastæði við Kjarrhólma. Þaðan var gengið inn í safnið og gróðurinn skoðaður með fræðslu sem Friðrik sá um. Þegar komið var í safnið næst gróðrarstöðinni Mörk mætti Mummi á svæðið og bauð hópnum inn í Mörk í kaffi og veitingar. Þar spjallaði hópurinn dágóða stund í góðu yfirlæti og hélt svo áfram að skoða safnið.  

Hinn helmingurinn hittist í þjónustumiðstöð Kópavogs við Askalind 5 og var umræðu efnið skólalóðir, leiksvæði og búnaður. Svavar Sverrisson garðyrkjuverkstjóri og Heiðar Smári Harðarson leiddu umræður.  

Fjallað var um fyrirkomulagið í Kópavogi og aðgerðaáætlun í endurnýjun leik- og grunnskólalóða annars vegar og leik- og afþreyingarsvæða hins vegar.  

Farið var vel yfir rekstrarskýrslur. 

Góðar umræður sköpuðust um málefnin. 

12.30 var formlegri dagskrá lokið.  

Samgus þakkar Reykjavík og Kópavogi fyrir góðar móttökur og góða samveru.   

Félagaskrá  

Eftir aðalfund 2024 voru félagar Samgus 74 talsins.   

Stjórnin þakkar þeim sem hafa hætt á árinu fyrir samstarfið og óskum þeim velfarnaðar á nýjum vettvangi. Jafnframt bjóðum við nýja félaga velkomna í samgus.   

Fyrir hönd stjórnar  

Nýjir félagar sem eru teknir inn í félagið á þessum aðalfundi:  Helga Íris Ingólfsdóttir Dalvík, Eiríkur Bjarmar Kjartansson Garðabæ, Jóhann Helgi Konráðsson Hafnarfjarðarbær, Magnús Þór Einarsson Rangárþing eystra, Einar Jónsson Reykjanesbæ, Margrét Lilja Margeirsdóttir Reykjanesbæ, Oddrún Sigurðardóttir Reykjavíkurborg, Geir Jónsson Reykjavíkurborg, Ágústa Erlingsdóttir Kirkjugarðaráð og Geir Gestsson Vesturbyggð.  

Ingibjörg Sigurðardóttir, Formaður.